Vínlaus lífsstíll vinsæll
Námskeiðið „Full af lífi – vínlaus lífsstíll“ hefst aftur 20. október - „stútfullt” af fróðleik
Námskeiðið „Full af lífi – vínlaus lífsstíll hefur fengið góðar viðtökur og verður á dagskrá í þriðja sinn, frá 20. október til 17. nóvember. Það stendur yfir í fimm vikur í 100-120 mín í hvert skipti. Það er haldið í Von, Efstaleiti 7 og er samstarfsverkefni leiðbeinenda og SÁÁ. Gunnar Hersveinn rithöfundur og heimspekingur og Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi eru kennarar.
Námskeiðið byggir á bókinni Vending – vínlaus lífsstíll eftir Gunnar Hersvein en bókin er skrifuð fyrir þau sem langar til að tileinka sér annan lífsstíl en vantar vendipunkt, verkfæri, kraft, samtal og lífsgildi til að stíga skrefið. Efnið er um sjálfsaga og vellíðan, hvernig höndla beri veikleika og efla styrkleika. Bókin fylgir með námskeiðinu.
Það krefst hugrekkis að breyta líferni sínu og hætta því sem telst eðlilegt í samfélaginu. Að lifa og starfa án áfengis er góð gjöf. Þátttakendur á þessu námskeiði fá að kynnast aðferðum við að breyta um lífsstíl og hversu góð áhrif það hefur á sál og líkama.
Full af lífi, dæmi um umsagnir
Námskeiðið hefur mælst vel fyrir, það er bæði lærdómsríkt og skemmtilegt. Við fáum góða gesti.
„frábært að nota lífsgildin, mikil sjálfsskoðun, vakna glaðari á morgnana, meiri lífsgleði“
„þetta er frábært námskeið hvort sem maður ætlar að hætta að drekka eða ekki, þá er að stútfullt af fróðleik“
„námskeiðið er faglegt og fræðilegt en jafnframt skemmtilegt og hvetjandi“
„finn fyrir frelsi, meiri orku, minni sjálfsgagnrýni og mun litríkara skapi“
„er hæstánægður með nýjan lífsstíl og er fullur af lífi“
„miklu betri líðan og þakklæti fyrir að vera laus úr viðjum áfengis“
„meiri innri ró, betri svefn, andleg og líkamleg vellíðan“
„skemmtilegt og áhugavert námskeið“
Hér eru nánari upplýsingar og einnig hægt að skrá sig á námskeiðið:
Upphæð: 38.900, afsláttur fyrir hjón 25% (58.350) og fyrir 15% (33.065) öryrkja og systkini.
Um námskeiðið - skráning
Um námskeiðið - lífsgildin
Pistlar: Að breyta um lífsstíl
Myndband: Gunnar flytur erind á Læknadögum um vínlausan lífsstíl