Að breyta um lífsstíl
Ég skrifaði bókina Vending um hvað þarf til þegar breyta á um lífsstíl. Hún er um það að nema staðar, horfa í spegil, koma auga á kýli og spyrja: Hvað ræður för?
Bókin Vending er um að tileinka sér annan lífsstíl og er sérstaklega skrifuð fyrir þau sem vantar vendipunkt, verkfæri, kraft, samtal og lífsgildi til að stíga skrefið. Hún er ekki aðeins um það að hætta að drekka vín og bæta heilsuna heldur einnig um að auka líkurnar á að lesanda takist að ná markmiðum sínum og vinna þau verk sem hann hefur metnað til að vinna.
Ég fullyrði að það krefst hugrekkis að taka ákvörðun um að breyta líferni sínu og hætta einhverju sem telst eðlilegt í samfélaginu.
Skýr hugur, skapandi hjarta, hraustur heili
Mér finnst að þau sem velja sér líferni án áfengis, og geta ennþá gert það af eigin rammleik, ættu að undirbúa sig vel til að áformin fjari ekki út. Margar leiðir að þessu markmiði eru til og það er líka hægt að blanda saman aðferðum.
Áfengi er ávanabindandi efni, það er staðreynd, efni sem hefur slæm áhrif á líkama og sál, fjölskyldu og samfélag. Það veldur slysum, ofbeldi, glæpum, dauða o.s.frv. Það er svo margt unnið við það að hætta að neyta áfengis; skýr hugur, skapandi hjarta og hraustur heili og að vera fær um að skynja gleði í kringum okkur sem er fyrirvaralaus og djúptæk á sama tíma.
Of mikið af öllu
Ofnautn, of mikið af öllu, of mikið vín, að fá of mikið af of mörgu, of oft, of gott aðgengi, of margar auglýsingar … Allt þetta hömluleysi sem engin leið er að fullnægja veldur fyrr eða síðar depurð, ókyrrð hugans og eirðarleysi. Það er því gott að einfalda lífernið ef markmiðið er að skipta um gír í lífinu.
Bókin Vending – vínlaus lífsstíll og námskeiðið Full af lífi! eru sniðin fyrir þau sem vilja einfalda líf sitt.
Að einfalda líf sitt
Það er gott fyrir öll sem hafa tapað tilfinningunni fyrir því hvaða lífsgildi vega þyngst og láta sig bara fljóta með straumnum, að gera tilraun til að einfalda líf sitt. Það kjarnar málin og hjálpar fólki til að velja sjálft og hafna.
Um leið og við ákveðum að einfalda líf okkar, sleppum við tökunum á draslinu, ringulreið hugsana og langana, hættum við að bæta sífellt við eða skipta notuðu út fyrir nýtt, hættum að strita og slökum heldur á, þá fyrst endurheimtum við fölskvalausa gleði. Líkami og hugur vakna og stíga upp úr haugnum og við sjáum á ný, heyrum og skiljum aðalatriði frá aukaatriðum.
Óttinn við að skera sig úr
Ótti við breytingar stendur oft í vegi fyrir betra lífi, óttinn við að skera sig úr, óttinn við að sýna sjálfsaga og styrk á sviðum þar sem flestallir leyfa sér að gera aðeins of mikið og aðeins of oft, þrátt fyrir að enginn beri virðingu fyrir þeim sem gera aðeins eins og aðrir, þeim sem láta undan þrýstingi, guggna undan hópþrýstingi.
Breyttur lífsstíll breytir eigin líðan, verkefnum, samskiptum og heilsu, og óttinn við frávik umbreytist í áræði og styrk til að feta eigin leið og fylgja áformum sínum eftir.
Tækifæri opnast fyrir aðrar sálargáfur
Við getum ekki tileinkað okkur vínlausan lífsstíl nema með því að losna við löngunina í áfengi. Þessi lífsstíll hvílir í raun ekki á viljastyrk eða þeirri viðleitni að koma böndum á löngun sem er að breytast í fíkn. Að halda löngun í skefjum er vissulega betra en ekkert en það er þreytandi taumhald.
Vilji er ekki allt sem þarf, viljastyrkur fjarar út. Að þurfa ekki á viljastyrk að halda til að standa sig er ágæt lausn, því „freistingarnar“ og gylliboðin líða hjá án þess að valda usla. Hugurinn öðlast langtímafrelsi án löngunar, laus við óttann, heill án átaka.
Áfengi getur ekki bjargað einu né neinu. Að vera frjáls frá áfengi eftir ánauð er ekki aðeins breyting á venjum heldur umbreyting á líferni, hugsun og hátterni. Það opnast svo tækifæri fyrir aðrar sálargáfur og – gjafir sem hafa beðið eftir að komast að.
Í bókinni Vending geri ég tilraun til að útskýra hvað vínlaus lífsstíll getur haft í för með sér. Við gerum það einnig á námskeiðinu Full af lífi! sem verður næst 20. október til 17. nóvember 2026.