Minnisbók um frið

25.5.26

Veröldin er að vígbúast. Virðing fyrir öllu fólki er á undanhaldi. Evrópa þarf að bregðast við tveimur ógnandi harðstjórum sem brjóta alþjóðalög og stofnsáttmála SÞ. Friðarmenning vax þar sem sáttmáli um samvinnu ríkir, andrúmsloft væntumþykju. Við megum ekki eftirláta kjaftforum friðarspillum sviðið. Við megum ekki draga okkur í hlé eða sofa ögn lengur. Við þurfum að stíga fram og taka þátt í umræðunni um frið. Gerum það, gerum hvað við getum, verum ljósberar.

20.5.26

Það sem ég skrifa er athugun, könnun, skrásetning og greining á nútíð með rætur í fortíð.

19.5.26

Við verðum að hugsa um stríð, illsku, frið og kærleika alla daga. Illskan hefur tekið of margt fólk, sundrað of mörgum fjölskyldum. Grimmdin að baki er of mikil. Ef við getum gert eitthvað núna þá eigum við að gera það. Ekki leyfa eitrinu að breiðast út og menga samskiptin.

18.5.26

Hvernig skal bregðast við óvild? Orðræðu sem flokkar og útilokar hópa fólks? Ef við skuldbindum okkur kærleikanum þá losnum við undan minnimáttarkenndinni og óttanum.

Hugtök óvildar læðast inn í tungumálið um þessar mundir til að vinna sitt ógagn, menga andrúmsloftið, hugarfarið. Það er nokkuð ljóst. Hvernig getum við tekist á við það án þess að falla í gryfju átakamenningar?

Ef við sofum ögn lengur, blundum ögn lengur, ef við rísum ekki af svefni, ef við eru of löt og nennum ekki einu sinni að standa vörð um orðin, þá glötum við ríkjandi góðvild og væntumþykju.

Verkefnið er að breiða út boðskapinn sem felst í friðarmenningu, að vera friðflytjandi, ljósberi sem fylgir kærleikanum og hafa skuggann ávallt í eftirdragi (við getum ekki losnað við skuggann).

Við leggjumst ekki á flótta undan sannleikanum og réttvísinni og ósigrum. Við erum ekki í fylgdarliði sem leyfir öðrum að hugsa fyrir sig.

Þau sem leggja ríka áherslu á varnarbaráttu og að verja Ísland og Íslendinga fyrir “flóttamannastraumi” og “hælisleitendabylgju” eru að breiða yfir óvild sína og hugarfar.

17.5.26

Ég las LTI - Lingua Terti Imperii - minnisbók fílólógs eftir Victor Klemperer (1946, 1957) og öðlaðist með því betra sjónarhorn á stöðuna í heimsmálum. Bókin er rannsókn á tungumáli Þriðja ríkisins sem nasistar komu á fót í Þýskalandi, sem byggði á fasískri orðræðu sem náði að festa rætur eftir fyrri heimstyrjöldina.

Bókina byggir hann á rannsóknum sínum, hugleiðingum og dagbókum sem hann hóf að rita fljótlega eftir að fasistar ná máli upp úr 1920. Hann er gyðingur en giftur þýskri konu og það veitir honum skjól frá mestu grimmdinni. Lesandinn fylgist með alveg frá 21. mars 1933 þegar “Ríkisathöfnin” fer fram í Potsdam þangað til styrjöldinni lýkur í maí 1945.

16.5.26 (hæsta stig)

Takið eftir orðunum. takið eftir tóninum. Þetta getur ekki farið framhjá okkur. Forseti Bandaríkjanna 2016-2020 og nú 2024-2028 notar aðferð fasistana sem mótuðu hana og notuðu hundrað árum áður. Okkur ber skylda til að læra að greina þessa orðræðu. Ég hef lesið bókina LTI eftir Victor Klemperer

Hér er eitt einkenni sem VK skrifar um í kaflanum Bölvun hæsta stigsins. Sá sem er ofurseldur mikilmennsku notar ævinlega hæsta stigs lýsingarorð yfir gjörðir sínar, þær eru engu líkar og ekkert sambærilegt hefur sést áður. Slíkur leiðtogi slær alltaf met í hvert sinn sem hann kemur fram, heldur ræðu eða tekur ákvörðun.

Hann er forseti og æðsti yfirmaður frjálsasta lands í heimi, þar sem “Bestu hermenn í heimi hafa fengið bestu vopn í heimi, smíðuð að bestu verkamönnum í heimi.” (248).

Hann heimsótti Kínaforseta í maí 2026 og heimsókinin var ekki aðeins söguleg að hans mati, heldur voru þetta söguleg tímamót. Orð hans bera mælskueinkenni á borð við ýkjur, skrauthvörf, alhæfingar og yfirbreiðslu staðreynda.

Hann spýr daglega eitruðum orðum yfir heimsbyggðina og hefur gert frá því hann bauð sig fram til forseta 2015. Hann er daglega í fréttum. Nafn hans er nefnt oftast allra, frá morgni til kvölds - og þetta hefur nú haft áhrif á hugarfar of margra til hins verra því því það mannúðina skortir.

Fyrr en varir hefur ríkisstjórn DT svipt fólk stöðum sínum og réttindum, dregið úr frelsi háskóla, lokað landamærum og skapað hatursumræðu. Flokkað ríki, þjóðir og hópa í vini og óvini. Þetta er aðferð illskunnar til að skapa sundrungu í samfélagi þjóðanna.

Það virðist vera létt verk fyrir siðblinda leiðtoga að fanga einstaklinga í net valdsins, svæfa skynsemina þeirra og vitsmuni og byrla okkur eitur. Við þurfum nauðsynlega að spýta því út ef það hefur komist inn fyrir varir okkar og skynfæri og taka móteitur.

Þetta eitur sem við drekkum án þess að vita af því hefur sín áhrif á hugsun okkar og viljastyrk. “Málið sem fyrir þig yrkir og hugsar” (Schiller). Hvaðan koma hugtökin, hver er merking þeirra og hver getur breytt inntaki þeirra. Geta fasistar mengað orðalag okkar og hugsun? Hugsið ykkur ef þeir leggja okkur orð í munn sem voru okkur ekki töm og sem útiloka manneskjur.

Forsetinn slær daglega söguleg met með ólýsanlegum styrkleika sínum. Hann vinnur ávallt óviðjafnanleg afrek enda besti forsetinn frá stofnun Bandaríkjanna - enda flestir aðrir duglausir.

Svona talaði Hitler í 12 ár án þess að loka munninum eða skammast sín. Nú höfum við hlustað á Trump í 11 ár eða frá því hann lýsti yfir framboði árið 2015 (versta ákvörðunin). Það sem hefur einkennt tal hans er það sama og einkenndi Hitler; að ata aðra aur, uppnefna þá, hæðast af þeim, ljúga upp á þá, grafa undan þeim. Upphefja síðan sjálfan sig og nota hæsta stig lýsingar um allt sem hann leggur hönd á - eins og það verði allt að gulli.

Ef hann reiðist og opinberar stórmennskubrjálsemi sína þá ætlar hann að tortíma elstu siðmenningu jarðarinnar og sprengja samfélag aftur í steinöld.

Veröldin sem ég, aftur á móti vil taka þátt í að skapa, byggist ekki á ótta við við óvini, heldur kærleika.

15.5.26

Við megum ekki sofa lengur á verðinum, ekki ögn lengur. “Hve lengi ætlar þú að hvílast, letingi? Hvenær ætlar þú að rísa af svefni? Sofa ögn enn, blunda ögn enn …” (Orðskviðir 6.9)

Allt sem við höfum eru hugur okkar og hjarta, viðhorf, orð og tungumál, kærleikur og óttaleysi andspænis ógninni. Ég skrifa: Láttu skuggann elta þig. Gangtu á móti sólinni, þannig að skugginn elti þig. Leyfðu honum aldrei að stíga fram fyrir þig. Þekktu sjálfan þig, sólina, tunglið, daginn og nóttina, myrkrið, birtuna.

Þekktu sjálfan þig er ævaforn ráðlegging, ekki aðeins ljósið í þér heldur einnig svarta myrkrið. Vertu ljósið og láttu skuggann elta þig, ekki stjórna þér.

14.5.26

Ég fékk hugljómun árið 1999 sem spratt af þeirri staðreynd að aldamót nálguðust. Ég fann knýjandi þörf til að velja og finna mér stað. Náttúruvernd, mannréttindi áttu hug minn og nú bættist friðarmenning við af fullum þunga. Sameinuðu þjóðirnar tileinkuðu árið 2000 friðarmenningu og nýársdag 2001 sem dag friðar. Ég hef ekki sleppt þessum þræði síðar.

Ég hef skrifað pistla, og bókarkafla, haldið erindi og tekið þátt í viðburðum. Friður er ekki vopnahlé heldur raunverulegt ástand, gildi og menning, fullgild veröld sem þarfnast ekki óvina eða varnarmúra.

Hugrekkið felst í því að velja friðinn, óttinn velur vopnin. Ég vel frið því hann er kærleikur. Þau sem velja vopnin eru á valdi óttans. Þetta er leyndur dómur.

Allt sem við höfum eru hugur okkar og hjarta, viðhorf, orð og tungumál, kærleikur og óttaleysi andspænis ógninni.

13.5.26.

Ef við hlustum þá heyrum við orðin, ef við lesum þá sjáum við þau á blaði og skjá. Þau eru kunnugleg. Þau eru komin aftur 100 árum síðar. Orðfæri og stílbragð sem lág í láginni en hefur verið endurvakið.

Við heyrum en hlustum ekki, sjáum en tökum ekki eftir.

Tungutak, tungumál þriðja ríkis Hitlerstímans, hugök og ræðustíll, orðbragð og óvildin , hatrið sem því fylgir hefur snúið aftur, ekki aðeins í jaðarhópum heldur hjá valdaklíkum og forsetum.

12.5.26

Takið eftir orðunum, hvernig þau breytast og verða útilokandi, takið eftir reglunum sem útiloka, takið eftir hrokanum sem felst í því að segjast hafa gjörsigrað og að hafa átt sögulegan fund. Undanfarin 12 ár hefur Trump og fylgisveinar hans spúð eitri yfir okkur, breytt orðræðunni, komið af stað hatursumræðu, dregið úr frelsi háskóla, skert réttindi kvenna og minnihlutahópa … okkur er byrlað eitur en við verðum að spýta því út og taka móteitur.

Ef við tökum upp orðalagið, leyfum því að læðast inn í okkar eign málnotkun þá drekkum við eitrið án þess að taka eftir því og það mun svo sannarlega hafa áhrif. “Málið sem fyrir þig yrkir og hugsar.” (Schiller).

Stefna sem þarf á andstæðingi að halda er hættuleg.

Megineinkenni stefnu á borð við fasisma felast í því að velja andstæðing og mála hann sterkum litum, spinna lygi til að fá fólk til að óttast hann og síðan að hata, afmennska og loks vera reiðubúið til að útiloka.

Andstæðingurinn er uppnefndur og hæddur með gæsalöppum. Ef við höldum áfram á þessari leið þá blasir við skelfing og dauði.

Við höfum nú horfst í augu við illskuna, sem býr sig undir bardaga. Hún er komin úr felum og er sýnileg. Það er nægilegt áfall. Leyfum áfallinu yfir ástandi heimsins að breiðast út, nemum höggbylgjuna. Ekki líta undan, ekki hopa á fæti, ekki fara í felur, því þá vex illskunni ásmegin. Afklæðumst brynju vanans og göngum spræk út undir beran himininn.

11.5.26

Okkur ber skylda til að greina stöðuna og kanna hvort verið sé að blása í glæður illskunnar. Hvaða eitri er verið að spúa yfir okkur? Hvernig stöðvum við útbreiðslu illskunnar?

10.5.26.

Við megum ekki sofa lengur á verðinum, þokan er þegar að þéttast og brátt sjáum við ekki handa okkar skil.

Illskan er safn af öllu því sem vinnur gegn mennskunni. Ég leyfi mér að nota það sem yfirhugtak. Gerendur átta sig oft ekki að þeir eru á valdi illskunnar. Mengunin er í æðum og litar hugarfarið. Tungumál er öflugt og kraftmikið að stundum má það sín meira en blóð (F.Rosenzwieg).

Ný orð birtast eða gömul orð fá nýja sérmerkingu sem verður ómissandi. Við verðum að sjá þau og heyra, skrifa þau og skýra áður en við hættum að sjá ljósið.

9.5.26

“Skerðu þig úr” ráðleggur Timothy Snyder sagnfræðingur. Það er auðvelt að gera ekki neitt, fljóta með, segja ekkert, líta undan. Mótmælum hættulegum skoðunum. Undanlátssemi gagnvart illskunni eflir hana. Höfnum forvirkri undanlátssemi.

Gleymum ekki að lýðskrumarar hagnýta sér okkar afrek í mannréttindamálum, eins og málfrelsi til að gerast sjálfir harðstjórar.

29.4.2026 (Inngangur)

Hér hefst dagbók/minnisbók eða kannski minnisblað um friðarmenningu. Í dag er 29. apríl 2026. Fyrst vil ég nefna að ég er að lesa bókin LTI eftir Victor Klemperer en undirtitill hennar er minnisbók fílólogs. Hún hefur veitt mér innblástur. Ég kem að því síðar en það fyrsta sem ég skrifaði undir hennar áhrifum er þessi texti:

Til er sögn um pelíkana sem nærir unga sína við brjóst sitt. Höggormurinn deyðir þá með biti sínu og eitri. Móðirin vekur þá aftur til lífsins með því að særa sig á brjósti og gefa ungunum sitt eigið hjartablóð.

Hún er tákn kærleika og hugrekkis. Hann er tákn illsku. Höggormurinn er engin hetja, það er pelíkaninn aftur á móti.

Valdakarlarnir sem angra okkur um þessar mundir, karlar eins og Putin, Trump, Khamenei og Netanyahu eru engar hetjur og eru ekki að drýgja neinar hetjudáðir. Tortíming er þeirra starf.

Sönn hetja gortar ekki af afrekum sínum og básúnar ekki út um allt hversu megnug hún er. Hún eignar sér ekki verk annarra til að sýnast hugrökk. Hún krefst þess ekki að fá friðarverðlaun Nóbels fyrir að hafa komið í veg fyrir ótilgreind stríð.

Valdamaður sem klæðir sig í stolinn fatnað hetju er illa við menntun og vitsmuni. Þekking og þjálfun vitsmuna skólabarna getur afhjúpað falskan hetjuskap leiðtogans. Menntun stúlkna og vald kvenna yfirleitt virðist vekja mestan ugg í þeirra hjörtum.

Hann þráir að vera hetja, skrýdd medalíum undir dynjandi lófaklappi en afrekin eru einungis í eigin þágu, því sönn hetja drýgir dáðir sínar af mannúð og fyrir mannkynið allt - án þess að átta sig á því.

Hetjulund þessara valdakarla er hávær og hégómleg. Þeir vilja kransa og heiðursmerki, heyra bumbur barðar og lúðrablástur.

Sönn hetja aftur á móti ver eigið líf og annarra í fjandsamlegum aðstæðum. Hún sýnir styrk í aðstæðum eymdar sem illmenni hafa skapað, illmenni sem spúa eitri. Slíkar hetjur eru ekki í einkennisbúningum og stjórna ekki banvænum drónum heldur reyna að finna leiðir til að bjarga sér og sínum dag hvern.

Gleymum ekki hinum sönnu hetjum og glepjumst ekki af illskunni. Fylgjum ekki morðingjum að málum. Höfnum þeim alfarið og segjum okkur úr bandalagi við þá.

Valdakarlarnir munu semja um vopnahlé og láta hampa sér sem hetjum, steypa styttur af sér og nefna götur í höfuðið á sér, prenta nöfn sín á peningaseðla, veita sér friðarverðlaun. Þeir eiga ekkert inni hjá okkur, þeir eru ekki hina sönnu hetjur. Stríðsherrar, einsræðisherrar, valdakarlar búa ekki yfir hugrekki eins og sjálfboðaliðar og starfsfólk sjúkrahúsa og björgunar- og hjálparsveita.

Hinar sönnu hetjur eru óbreyttir borgarar sem leggja sig fram við bjarga börnum og nágrönnum í rjúkandi borgum eftir viðurstyggilega eyðileggingu.

Aðdáun okkar er hjá þeim. Þau eru pelíkanar sem gefa eigið hjartablóð og vekja fólk til vonar og lífs á nýjan leik.

p.s. Leó páfi hefur hugrekki til að gagnrýna heimsleiðtoga. Ákall hans er um frið. Hann er ómyrkur í máli. Leó þýðir ljón - það heyrist þegar ljón urrar.

p.s.s. Í tvö til þrjú ár milli 21 og 25 ára skrifaði ég hugsanadagbók. Þessi minnisbók er í raun hugsanadagbók með þema sem er friðarmenning.